31.01.06 - 10:13
Hafliði Breiðfjörð
Matthew Mills til Man City (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson


Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Matthew Mills gekk í dag í raðir Manchester City frá Southampton. Mills er 19 ára gamall varnarmaður. Hann gerði þriggja og hálfs árs samning við Man City eftir að félögin höfðu komist að samkomulagi um kaupverð.
Hjá City hittir Mills fyrir varaliðsþjálfarann Steve Wigley sem vann mikið með honum í unglingastarfi Southampton.
Mills er fyrrum landsliðsmaður U-21 árs liðs Englendinga. Hann verður önnur kaup City á sólarhringnum, kemur á eftir Grikkjanum Georgios Samaras.
Mills er fyrrum landsliðsmaður U-21 árs liðs Englendinga. Hann verður önnur kaup City á sólarhringnum, kemur á eftir Grikkjanum Georgios Samaras.
