31.01.06 - 14:30
Hafliði Breiðfjörð
Ghaly til Tottenham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Tottenham hafa fengið egypska landsliðsmanninn Hossam Ghaly í sínar raðir en hann kemur frá Feyenoor í Hollandi og gerir fjögurra og hálfs árs samning við félagið. Ghaly er 24 ára gamall miðvallarleikmaður. Hann hefur leikið 49 leiki með Feyenoord en hann gekk til liðsins frá Al Ahly í Egyptalandi.
Damien Comolli yfirmaður íþróttamála hjá Spurs sagði:
,,Ég hef fylgst með Hossam síðan hann var 17 ára. Hann er fjölhæfur, mjög sterkur líkamlega og hefur mikla tækni. Hann er miðvallarleikmaður sem mun gefa okkur mikla möguleika og er frábær viðbót við leikmannahóp okkar."