31.01.06 - 16:30
Hafliði Breiðfjörð
Delap til Sunderland (Staðfest)

Rory Delap í leik með Southampton

Mynd: Getty Images

Rory Delap í leik með Southampton

Mynd: Getty Images
Sunderland sömdu í dag við miðjumanninn Rory Delap sem kemur frá Championship liði Southampton á frjálsri sölu. Delap sem á að baki 11 landsleiki fyrir Írlands hönd skrifaði undir tveggja og hálfs árs samning við Sunderland eftir að hafa komist í gegnum læknisskoðun.
Hann er 29 ár gamall og var dýrasti leikmaður Southampton er hann gekk í raðir félagsins frá Derby County á 4 milljónir punda í júlí 2001.
Hann verður ekki með Sunderland í leiknum gegn Middlesbrough í kvöld þar sem hann er meiddur á hæl.
Hann verður ekki með Sunderland í leiknum gegn Middlesbrough í kvöld þar sem hann er meiddur á hæl.
