31.01.06 - 17:42
Hafliði Breiðfjörð
Arsenal selja Owusu-Abeyie til Spartak (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Arsenal hafa selt hollenska ungstirnið Quincy Owusu-Abeyie til Spartak Moskvu í Rússlandi en kaupverð var ekki gefið upp. Framherjinn sem er 19 ára gamall hefur skrifað undir samning við rússneska félagið en Arsenal er nýbúið að fá tvo unga leikmenn, þá Theo Walcott og Emmanuel Adebayor.
Owusu-Abeyie er U-21 árs landsliðsmaður Hollands. Hann gekk í raðir Arsenal frá Ajax árið 2002 og spilaði 23 leiki með aðallliðinu, flesta í Carling og FA Cup.
