Fotbolti.net
31.01.06 - 18:13
Hafliði Breiðfjörð

Williams Martinez til WBA (Staðfest)

Bryan Robson

Bryan Robson

Canon

Mynd: Getty Images

WBA hafa fengið Williams Martinez miðvörð landsliðs Úrúgvæ að láni út leiktíðina með möguleika á að kaupa leikmanninn á 2 milljónir punda í kjölfarið. Martinez kemur frá Sporting Defensor í heimalandinu. Hann er búinn að komast í gegnum læknisskoðun og samþykkja kaup og kjör en bíður eftir leikheimild.
,,Ef Williams er einhversstaðar nálægt þvi eins góður og Curtis Davies er ég mjög ánægður," sagði Bryan Robson stjóri WBA í dag.

Wiliams var fyrirliði Sporting Defensor. Hann er nýbúinn að tryggja sér sæti í landsliði Úrúgvæ.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.