31.01.06 - 20:26
Magnús Már Einarsson
Cesar til Inter (Staðfest)

Cesar bregður á leik með Paolo Di Canio.

Mynd: Getty Images

Cesar bregður á leik með Paolo Di Canio.

Mynd: Getty Images
Inter hefur krækt í Cesar vinstri kantmann Lazio á láni fram á sumar en þá rennur samningur hans við síðarnefnda liðið út og hefur hinn 31 árs gamli Cesar víst þegar gert samning við Inter um að leika áfram með liðinu næstu tvær leiktíðir.
Hluti af lánssamningnum er sá að Lazio á nú helmings hlut í ungu leikmönnunum Alberto Quadri og Siqueira de Oliveira en Inter á ennþá hinn helminginn.
Lazio var ekki lengi að finna arftaka Cesar en liðið krækti í Massimo Bonanni vinstri kantmann Palermo að láni út leiktíðina.
Lazio var ekki lengi að finna arftaka Cesar en liðið krækti í Massimo Bonanni vinstri kantmann Palermo að láni út leiktíðina.
