31.01.06 - 23:16
Hafliði Breiðfjörð
Robert Earnshaw til Norwich (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Robert Earnshaw framherji WBA skrifaði í kvöld undir samning við enska Championship liðið Norwich City en kaupverðið er 3,5 milljónir punda. Á vefsíðu Norwich segir að kaupverðið samanstandi af 2,75 milljón punda greiðslu strax og 750 þúsund pund til viðbótar ef ákveðnum takmörkum verður náð.
Earnshaw sem er 24 ára gamall skoraði 14 mörk í 34 leikjum fyrir WBA eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Cardiff City í september 2004. Kaupverðið þá var 3,5 milljónir punda.
Norwich eru í ellefta sæti Championship deildarinnar og með 39 stig úr 30 leikjum og töpuðu 4-0 fyrir toppliði Reading nú í kvöld. Earnshaw ferðaðist með liðinu í leikinn en skrifaði ekki undir samninginn fyrr en að honum loknum.