Fotbolti.net
31.01.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Greg Halford til Reading (Staðfest)

Halford fagnar marki fyrir Colchester

Halford fagnar marki fyrir Colchester

Canon

Mynd: Getty Images

Reading hafa gengið frá kaupunum á hinum 22 ára gamla Greg Halford en hann er unglingalandsliðsmaður og kemur frá Colchester United.
Samkvæmt heimildum BBC fréttastofunnar verður hann dýrasti leikmaður í sögu Colchester en áður höfðu þeir fengið 2,25 milljónir punda fyrir Lomano Lua Lua þegar hann var seldur til Newcastle á sínum tíma.

,,Ég er ótrúlegur ánægður með kaupin, við unnum samkeppni frá fjölda félaga til að fá Greg til Reading. Hann hefur ótrúlega hæfileika og dæmigerð kaup fyrir Reading - ungur, hungraður og með þá hæfileika til að verða jafnvel enn betri heldur en hann er," sagði Nick Hammond, yfirmaður íþróttamála hjá Reading.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.