31.01.07 - 14:35
Hafliði Breiðfjörð
Gareth Williams til Watford (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Watford gengu nú í dag frá kaupum á Gareth Williams frá Leicester City en kaupverð var ekki gefið upp. Williams er 25 ára gamall skoskur miðvallarleikmaður. Hann gerir tveggja og hálfs árs samning við Watford.
Williams er fimmti leikmaður sem gengur í raðir Watford nú í janúar glugganum. Áður komu þeir Moses Ashikodi, Will Hoskins, Lee Williamson og Steve Kabba.
Hann hafði áður komið til Leicester frá Nottingham Forest árið 2004 en samningur hans átti að renna út í lok leiktíðarinnar.
Hann hafði áður komið til Leicester frá Nottingham Forest árið 2004 en samningur hans átti að renna út í lok leiktíðarinnar.
Heimild: BBC
