Fotbolti.net
31.01.07 - 14:54
Magnús Már Einarsson

Ball til Manchester City (Staðfest)

Ball til Manchester City (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City hefur samið við vinstri bakvörðuinn Michael Ball út þessa leiktíð en hann kemur frá PSV Eindhoven í Hollandi.
Þessi fyrrum leikmaður Everton og Glasgow Rangers kom til Manchester City á reynslu í síðustu viku og náði að standa sig nógu vel til að krækja í samning. Honum ætlað að fylla skarðið sem að Ben Thatcher skildi eftir sig þegar hann fór til Charlton.

Ball sem er 27 ára var kominn aftarlega í goggunarröðina hjá PSV Eindhoven en hann er annar leikmaðurinn sem Manchester City fær í mánuðinum, á eftir Djamel Abdoun.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.