Fotbolti.net
31.01.07 - 15:54
Magnús Már Einarsson

Sampdoria fær Reto Ziegler á láni (Staðfest)

Sampdoria fær Reto Ziegler á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sampdoria sem situr í tíunda sæti í Serie A hefur fengið vinstri bakvörðinn og kantmanninn Reto Ziegler að láni frá Tottenham út þessa leiktíð.
Ziegler sem er svissneskur landsliðsmaður kom til Tottenham frá Grasshoppers í ágúst 2004 og skoraði hann 1 mark í 31 leik fyrir enska félagið á sinni fyrstu leiktíð.

Á síðustu leiktíð spilaði þessi 21 árs gamli leikmaður 14 leiki fyrir Hamburg SV þar sem hann var á láni en síðari hluta leiktíðarinnar fór hann til Wigan á láni og lék þrettán leiki.

Ziegler hefur leikið fjóra leiki með aðalliði Tottenham á þessari leiktíð en nú er hann farinn til Genoa og genginn til liðs við Sampdoria á láni.

Heimild: Opinber heimasíða Tottenham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.