31.01.07 - 18:21
Magnús Már Einarsson
Matthew Upson til West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
West Ham hefur fengið miðvörðinn Matthew Upson frá Birmingham á sex milljónir punda en kaupverðið getur hækkað upp í 7,5 milljónir leiki hann mikið fyrir sitt nýja félag.
Upson hefur gert fjögurra og hálfs árs samning við West Ham en Birmingham hafði áður hafnað tveimur tilboðum frá Hömrunum í leikmanninn.
Upson sem er 27 ára gamall kom til Birmingham fram Arsenal á 2,5 milljónir punda í janúar 2003.
Hann hafði hafnað nýju samningstilboði frá Birmingham en samkvæmt reglugerð hjá FIFA hefði hann getað yfirgefið félagið í sumar ef hann hefði borgað upp þá tólf mánuði sem hann hefði þá átt eftir af samningnum.
Alan Curbishley stjóri West Ham hefur með kaupunum á Upson fengið sex nýja leikmenn í janúar og stykt liðið verulega fyrir komandi átök.

Heimild: BBC