31.01.07 - 19:29
Hafliði Breiðfjörð
Stefano Fiore til Livorno (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stefano Fiore gekk í raðir Livorno á Ítalíu en hann er lánaður frá Tórínó út tímabilið. Fiore sem er fyrrum landsliðsmaður Ítalíu hafði verið orðaður við Livorno undanfarnar vikur og í kvöld var gengið frá skiptunum.
,,Hann var sá sem við vorum helst á eftir því Daniele Arrigoni þjálfari okkar bað sérstaklega um hann," sagði Aldo Spinelli forseti Livorno í kvöld.
,,Þetta voru félagaskipti sem var mjög erfitt að ganga frá því að semja við Urbano Cairo eiganda Tórínó er erfiðara en að eiga í viðskiptum við fólk frá Genoa. En við erum allir mjö ánægðir og þjálfarinn er mjög hrifinn."
Þrátt fyrir að Tórínó láni leikmanninn til Livorno þá eiga þeir hann ekki. Það er Valencia á Spáni sem á hann og hafði lánað hann til Tórínó út tímabilið.
,,Við fengum leyfi Valencia og munum líka ræða við þá í framtíðinni til að sjá hvort hægt sé að framlengja samstarfinu enn frekar," bætti forsetinn við.

Heimild: Channel 4