31.01.07 - 19:50
Hafliði Breiðfjörð
Manuel Fernandes til Everton út tímabilið (Staðfest)

Fernandes í leik með Portsmouth.

Mynd: Getty Images

Fernandes í leik með Portsmouth.

Mynd: Getty Images
Everton hafa gengið frá lánssamningi á portúgalska landsliðsmanninum Manuel Fernandes sem kemur frá Benfica í heimalandinu. Fernandes sem er tvítugur er lánaður til enska félagsins út leiktíðina.
,,Við erum ánægðir með að fá hann inn í hópinn og við hlökkum til að sjá hann í liði okkar á næstu mánuðum," sagði David Moyes stjóri Everton á vefsíðu félagsins.
Viðræður hafa staðið yfir milli Everton og Benfica um leikmanninn sem komst í gegnum læknisskoðun hjá Everton fyrir rúmri viku síðan. Fernandes var á fyrri hluta leiktíðarinnar á láni hjá Portstmouth þar sem hann lék 12 leiki áður en hann sneri aftur til Benfica í síðasta mánuði.
Hann er alinn upp hjá Benfica en hefur leikið með yngri landsliðum Portúgals frá 15 ára aldri. Hann lék fyrsta A-landsleik sinn árið 2005 og skoraði í sínum öðrum landsleik.
Hann var ekki í HM hópi Portúgals síðasta sumar en fór á láni til Portsmouth um sumarið þar sem hann skoraði fyrsta mark sitt á Englandi í leik gegn Mansfield í deildabikarnum.

Heimild: Vefsíða Everton