Fotbolti.net
31.01.07 - 22:09
Magnús Már Einarsson

Arbeola og Duran til Liverpool (Staðfest)

Alvaro Arbeloa í bikarleik með Real Madrid árið 2005.

Alvaro Arbeloa í bikarleik með Real Madrid árið 2005.

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur fengið hægri bakvörðinn Alvaro Arbeloa frá Deportivo La Coruna og miðjumanninn Francisco Manuel Duran frá Malaga en báðir leikmennirnir hafa staðist læknisskoðun og er búið að ganga frá kaupunum. Liverpool hefur hins vegar ekki ennþá gengið frá komu Javier Mascherano nú þegar um tveir klukkutímar eru í að félagaskiptaglugginn loki.
Arbeloa sem er 24 ára hefur verið fastamaður í liði Deportivo á leiktíðinni en hann kom til félagsins frá Real Madrid síðastliðið sumar. Talið er að Liverpool borgi um 2,6 milljónir punad fyrir leikmanninn sem segir það hafa komið sér á óvart að fá tækifæri til að fara til enska félagsins.

,,Þangað til í gær var ég ekki viss um það hvort ég færi eða ekki. Umboðsmaðurinn minn sagði mér að samningur væri mjög langt kominn og svo var mér sagt að samningar hafi náðst milli beggja félaga," sagði Arbeloa.

,,Fyrir mér er þetta falleg áskörun og ég vona að allt fari vel. Þetta er stórt stökk fyrir mig," bætti hann við.

Duran sem er átján ára kemur frá Malaga en hann var ekki á atvinnumannasamningi hjá spænska félaginu.

,,Þetta er einstakt tækifæri og ég gat ekki látið það framhjá mér fara. Ég hef talað við Rafa Benitez og ég held að þetta sé besti möguleikinn fyrir mig. Að spila fyrir Liverpool er draumur fyrir mig og ég óska þess einungis núna að berjast fyrir því að spila loksins fyrir félagið," sagði Duran.

Heimild: Heimasíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.