31.01.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Wayne Routledge til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur keypt kantmanninn Wayne Routledge frá Tottenham á 1,5 milljónir punda.
Þessi 23 ára gamli leikmaður kom til Tottenham frá Crystal Palace árið 2005 og var þá álitinn vera einn efnilegasti leikmaðurinn í enska boltanum.
Hins vegar settu meiðsli strik í reikninginn og Routledge náði sér aldrei á strik hjá Tottenham.
Hann var lánaður til Portsmouth í janúar 2006 og á síðustu leiktíð lék hann með Fulham á lánssamningi. Núna hefur hann síðan gert eins og hálfs árs samning við Aston Villa.
Á þessu tímabili hefur Routledge einungis leikið tvo leiki með Tottenham, báða í ágúst og nú vonast hann til að fá að spila meira með því að fara til Villa.
Martin O'Neill stjóri Villa vonast til að geta bætt hópinn sinn ennþá frekar áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti en hann er að reyna að fá markvörðinn Brad Guzan frá Chivas á tvær milljónir punda.

Heimild: BBC