Fotbolti.net
31.01.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson

HK semur við Mitja Brulc (Staðfest)

Mitja Brulc mun leika með HK í Landsbankadeildinni á komandi sumri.

Mitja Brulc mun leika með HK í Landsbankadeildinni á komandi sumri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

HK hefur samið við slóvenska leikmanninn Mitja Brulc og mun hann leika með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Brulc er samningsbundinn Maribor í heimalandi sínu og kemur hann því til HK á átta mánaða lánssamningi en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Brulc sem er 28 ára getur leikið bæði á kantinum og í fremstu víglínu en hann var til reynslu hjá HK á dögunum og lék æfingaleik með liðinu gegn Aftureldingu síðastliðinn mánudag. Brulc hefur spilað í efstu deild í Slóveníu frá árinu 1999 fyrir utan árið 2004 þegar hann lék með Molde í Noregi.

Hann er annar leikmaðurinn sem HK fær í vikunni en áður hafði króatíski miðjumaðurinn Goran Brajkovic samið við félagið. Fleiri leikmenn gætu verið á leiðinni eins og Gunnar Guðmundsson þjálfari HK sagði í viðtali við Fótbolta.net í fyrradag en danski framherjinn Iddi Aklhag kom til félagsins í gær og verður á reynslu næstu dagana.

,,Við erum mjög ánægðir með þá Brajkovic og Brulc, þetta eru öflugir fótboltamenn sem eiga að vera góður liðsstyrkur fyrir okkur, en koma líka mjög vel fyrir og virðast vera góðir karakterar fyrir okkar lið, sem er ekki síður mikilvægt."

,,Nú bíðum við og sjáum hvernig Alkhag kemur út en það er að komast mjög góð mynd á okkar leikmannahóp. Takmarkið var að fá fáa en sterka leikmenn sem myndu nýtast vel með okkar efnilegu strákum,"
sagði Valdimar Hilmarsson í meistaraflokksráði HK á heimasíðu félagsins.

Heimild: Heimasíða HK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.