31.01.08 - 14:06
Hörður Snævar Jónsson
Roy Caroll til Derby (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Derby hefur fengið Roy Carroll á láni frá Rangers til loka leiktíðarinnar.
Carroll kom til Rangers frá West Ham síðastliðið sumar en þessi fyrrum markvörður Manchester United hefur ekki náð að festa sig í sessi í Skotlandi og leikið einungis einn leik í úrvalsdeildinni þar í landi.
Carroll hóf feril sinn hjá Hull City árið 1995 og fór síðan til Wigan þar sem hann lék 136 leiki.
Eftir að hafa leikið með Manchester United 2001-2005 fór hann til West Ham.
Carroll hóf feril sinn hjá Hull City árið 1995 og fór síðan til Wigan þar sem hann lék 136 leiki.
Eftir að hafa leikið með Manchester United 2001-2005 fór hann til West Ham.
Heimild: BBC
