31.01.08 - 17:49
Magnús Már Einarsson
Leeds fær Michalik frá Bolton (Staðfest)

Michalik í baráttu við Andriy Shevchenko.

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur fengið varnarmanninn Lubomir Michalik frá Bolton Wanderers en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 24 ára gamli leikmaður var á láni hjá Leeds undir lok síðustu leiktíðar en gat ekki hjálpað liðinu að forðast fall úr Championship deildinni.
Michalik, sem er frá Slóvakíu, hefur verið að spila með Bolton að undanförnu en eftir komu Gary Cahill frá Aston Villa í gær var ljóst að tækifærin myndu minnka og því ákvað hann að fara til Leeds.
Leeds hefur haft áhuga á að fá Michalik í þónokkurn tíma en hann stekkur væntanlega beint inn í leikmannahópinn fyrir leikinn gegn Tranmere Rovers um helgina.
Michalik er ekki eini leikmaðurinn sem Leeds hefur fengið í dag því Darren Kenton hefur komið til félagsins sem og Alan Sheehan sem kemur á láni frá Leicester.

Heimild: Sky