Fotbolti.net
31.01.08 - 22:36
Hörður Snævar Jónsson

Gilberto til Tottenham (Staðfest)

Gilberto til Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hefur fest kaup á brasilíska bakverðinum Gilberto frá Hertu Berlin.
Þessi félagaskipti koma verulega á óvart þar sem Herta Berlin sagði að Gilberto hefði fallið á læknisskoðun hjá Tottenham fyrr í dag.

Gilberto sem spilar oftast í vinstri bakverði getur einnig spilað á miðjunni en Juande Ramos stjóri Tottenham er mikill aðdáandi hans.

Samningur Gilberto við Herthu Berlin átti að renna út í sumar en Ramos hefur verið að reyna að fá hann allan janúar mánuð.

Þetta er fjórði leikmaðurinn sem Ramos fær í janúar en hann hafði áður fengið þá Chris Gunter, Jonathan Woodgate og Alan Hutton.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.