Fotbolti.net
31.01.23 - 20:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Illia Zabarnyi til Bournemouth (Staðfest)

Illia Zabarnyi.

Illia Zabarnyi.

Canon

Mynd: Getty Images

Bournemouth hefur keypt úkraínska miðvörðinn Illia Zabarnyi frá Dynamo Kiev.

Talið er að kaupverðið sé í kringum 24 milljónir punda og er hann þar með er hann einn dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Zabarnyi er aðeins tvítugur að aldri en hann þykir mjög svo spennandi leikmaður. Hann á að hjálpa Bournemouth að halda sér uppi í ensku úrvalsdeildinni.

Bournemouth kynnti hann með skemmtilegu myndbandi sem má sjá hér að neðan, en félagið notaði tölvuleikinn Football Manager til að kynna hann til leiks.

Bournemouth er þá núna að ganga frá kaupum á Hamed Traore, kantmanni frá Sassuolo, fyrir 30 milljónir evra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.