Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 31. janúar 2023 15:52
Elvar Geir Magnússon
U21 leikur vináttulandsleik við Íra - Æfingahópur valinn
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins.
Davíð Snorri Jónasson, þjálfari U21 landsliðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Logi Lúðvíksson er í hópnum.
Anton Logi Lúðvíksson er í hópnum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Snorri Jónasson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið 26 leikmenn frá fjórtán félögum í hóp sem æfir dagana 7. og 8. febrúar.

Æfingarnar fara báðar fram í Miðgarði í Garðabæ og eru liður í undirbúningi liðsins fyrir vináttuleik gegn Írlandi 26. mars sem leikinn verður í Cork á Írlandi. Æfingahópurinn samanstendur af leikmönnum sem leika á Íslandi.

Leikurinn fer fram á Turner's Cross í Cork. Þjóðirnar hafa mæst fimm sinnum í þessum aldursflokki. Ísland hefur unnið fjóra af þeim viðureignum og Írar eina. Liðin mættust síðast árið 2020 í undankeppni EM 2021 og endaði sá leikur með 2-1 sigri Ísland á Tallaght Stadium. Sveinn Aron Guðjohnsen og Valdimar Þór Ingimundarson skoruðu mörk Íslands í þeim leik.

Á fimmtudag, 2. febrúar, kl. 08:00, verður svo dregið í undankeppni EM 2025 hjá U21 karla og verður Ísland þar í þriðja styrkleikaflokki.

Hópurinn
Andi Hoti - Leiknir R.
Anton Logi Lúðvíksson - Breiðablik
Eyþór Aron Wöhler - Breiðablik
Baldur Logi Guðlaugsson - FH
Davíð Snær Jóhannsson - FH
Jóhann Ægir Arnarsson - FH
Logi Hrafn Róbertsson - FH
Ólafur Guðmundsson - FH
Úlfur Ágúst Björnsson - FH
Lúkas Logi Heimisson - Fjölnir
Arnór Gauti Jónsson - Fylkir
Ólafur Kristófer Helgason - Fylkir
Óskar Borgþórsson - Fylkir
Eiður Atli Rúnarsson - HK
Árni Marínó Einarsson - ÍA
Jón Gísli Eyland Gíslason - ÍA
Arnar Breki Gunnarsson - ÍBV
Jón Vignir Pétursson - Selfoss
Ísak Andri Sigurgeirsson - Stjarnan
Örvar Logi Örvarsson - Stjarnan
Orri Hrafn Kjartansson - Valur
Ari Sigurpálsson - Víkingur R.
Danijel Dejan Djuric - Víkingur R.
Sveinn Gísli Þórkelsson - Víkingur R.
Baldur Hannes Stefánsson - Þróttur R.
Ragnar Óli Ragnarsson - Þór
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner