21.11.26 - 16:36
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Nmecha kom Dortmund á toppinn

Nmecha fagnaði 'eðlilega' í þetta sinn

Mynd: EPA

Brajan Gruda skoraði og lagði upp fyrir Leipzig

Mynd: EPA

Nmecha fagnaði 'eðlilega' í þetta sinn

Mynd: EPA
Felix Nmecha skoraði sigurmark Borussia Dortmund undir lok leiks í 1-0 sigri á Borussia Mönchengladbach í dag og kom liðinu þar með á topp þýsku deildarinnar.
Nmecha var harðlega gagnrýndur fyrir landsleikjahléið eftir að hafa fagnað marki með því að taka ímyndaða kórónu af höfðinu og leggja hana á grasið.
Fagnið var talið vera vísun í trúfélagið Ballers in God, sem margir þekktir atvinnumenn tilheyra. Málið vakti mikla athygli í Þýskalandi og var Nmecha meðal annars beðinn um að fagna ekki með þessum hætti aftur.
Það var svo auðvitað einmitt Nmecha sem skoraði sigurmarkið í dag. Hann lét vaða fyrir utan vítateig og átti fast skot sem Daniel Batz, markvörður Gladbach, missti klaufalega úr höndunum og í netið.
Afskaplega slæm mistök hjá Batz en Dortmund kvartaði ekki. Liðið er á toppi deildarinnar með 24 stig, tveimur stigum meira en Bayern München, á meðan Gladbach situr á botninum með aðeins fjögur stig.
Brajan Gruda er að eiga frábært tímabil með RB Leipzig og gæti hæglega orðið næsti leikmaður liðsins til að fara til eins af stórliðum Evrópu. Hann skoraði og lagði upp mark í 5-1 stórsigri Leipzig á Union Berlín.
Þetta var fyrsta deildarmark Gruda á tímabilinu, en hann hefur einnig gefið fimm stoðsendingar.
Leipzig er í fjórða sæti með 21 stig, en Bayer Leverkusen vann einnig stórsigur þegar liðið lagði Paderborn 4-0. Þar skoraði Afonso Moreira tvö mörk og lagði upp eitt til viðbótar.
Þá var Cole Campbell í byrjunarliði nýliða Elversberg sem töpuðu 1-0 fyrir Freiburg. Elversberg situr í áttunda sæti með 13 stig.
Union Berlin 1 - 5 RB Leipzig
0-1 Antonio Nusa ('18 , víti)
1-1 Michel Aebischer ('41 )
1-2 Romulo ('50 )
1-3 Brajan Gruda ('72 )
1-4 Rocco Reitz ('76 )
Bayer 4 - 0 Paderborn
1-0 Afonso Moreira ('14 )
2-0 Afonso Moreira ('47 )
3-0 Patrik Schick ('51 )
4-0 Ezequiel Fernandez ('59 )
Borussia M. 0 - 1 Borussia D.
0-1 Felix Nmecha ('80 )
Eintracht Frankfurt 1 - 0 Hoffenheim
1-0 Jonathan Burkardt ('25 )
1-0 Andrej Kramaric ('41 , Misnotað víti)
1-0 Jonathan Burkardt ('44 , Misnotað víti)
Elversberg 0 - 1 Freiburg
0-1 Igor Matanovic ('68 )

Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Dortmund | 10 | +10 | 24 |
| 2 | Bayern | 10 | +20 | 22 |
| 3 | Freiburg | 10 | +11 | 22 |
| 4 | RB Leipzig | 10 | +17 | 21 |
| 5 | Leverkusen | 10 | +7 | 19 |
| 6 | Werder | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Frankfurt | 10 | -4 | 15 |
| 8 | Elversberg | 10 | -2 | 13 |
| 9 | Stuttgart | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Hoffenheim | 10 | -2 | 12 |
| 11 | Hamburger | 9 | -10 | 12 |
| 12 | Mainz | 9 | -1 | 10 |
| 13 | Köln | 10 | -4 | 10 |
| 14 | Paderborn | 10 | -7 | 10 |
| 15 | Augsburg | 9 | 0 | 9 |
| 16 | Union Berlin | 10 | -17 | 7 |
| 17 | Schalke 04 | 9 | -6 | 6 |
| 18 | Gladbach | 10 | -14 | 4 |