21.11.26 - 15:21
Brynjar Ingi Erluson
„Við erum að gera allt sem við getum til að laga þetta“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Man City hefur nú farið fjóra leiki í röð án sigurs, en Elliot Anderson, sem skoraði mark liðsins í 1-1 jafnteflinu gegn Fulham í dag, segir leikmenn gera allt sem þeir geta til að snúa genginu við.

TENGT EFNI
Bundu enda á tuttugu leikja taphrinu
City-menn áttu slakan fyrri hálfleik þar sem ákefðin var lítil og fóru inn í leikhléið 1-0 undir.
Liðið hefur ítrekað lent undir á tímabilinu og segir Anderson að þetta sé vandamál sem leikmenn séu að reyna að laga.
„Þetta er mjög svekkjandi. Það var alls ekki upplagt að lenda undir en þetta virðist vera að gerast aftur og aftur. Seinni hálfleikurinn var betri, við sýndum meiri ákefð og færðum okkur ofar á völlinn. Okkur tókst bara ekki að skora annað markið.“
„Við erum að gera allt sem við getum til að laga þetta.“
Anderson skoraði sjálfur stórglæsilegt jöfnunarmark með viðstöðulausu skoti eftir hornspyrnu og var ánægður með hvernig hann kláraði færið.
„Mitt hlutverk er að vera við vítateigslínuna þegar við fáum hornspyrnur frá þessari hlið og reyna að hitta boltann vel. Ég reyni að halda ró minni í svona stöðum og ná góðri snertingu.“
„Við lærum eitthvað nýtt í hverjum einasta leik. Við munum halda áfram að æfa og verðum klárir í næsta leik,“ sagði Anderson í lokin.