21.11.26 - 15:55
Brynjar Ingi Erluson
Umdeilt mark dæmt af Haaland - „Ég var með boltann í höndunum“

Bernd Leno

Mynd: EPA

Haaland taldi sig hafa jafnað metin

Mynd: EPA

Bernd Leno

Mynd: EPA
Mark var dæmt af norska framherjanum Erling Braut Haaland í fyrri hálfleik gegn Fulham á Etihad í dag, en dómurinn þótti umdeildur við fyrstu sýn.

TENGT EFNI
England: Man City heldur áfram að misstíga sig
Haaland náði að koma boltanum í netið þegar Bernd Leno, markvörður Fulham, virtist þegar vera kominn með hann í hendurnar.
Það var þó ekki alveg augljóst á endursýningunum hvort Leno hefði náð fullri stjórn á boltanum, en Premier League Match Centre hefur staðfest að markvörðurinn hafi verið með báðar hendur á honum og því hafi verið rétt að dæma markið af.
Leno sagðist eftir leikinn hafa verið sannfærður um að Haaland hefði brotið á sér.
„Ég var með boltann í höndunum og fann að ég hafði stjórn á honum. Þá kom Haaland á ferðinni og keyrði inn í mig, einhvern veginn rann hann á mig. Völlurinn var blautur og ég vonaðist til að VAR myndi ekki breyta ákvörðun dómarans.“
„Fyrir mér var þetta brot en vonandi tók dómarinn rétta ákvörðun,“ sagði Leno.
Eins og sjá má á myndinni hér fyrir neðan er þó skiljanlegt að ekki séu allir sammála dómnum.

???? ????????????: VAR DETERMINED THIS AS A FOUL BY ERLING HAALAND!
— The Touchline | ???? (@TouchlineX) November 21, 2026
MANCHESTER CITY FANS AND ERLING HAALAND ARE FURIOUS, THEY BELIEVE IT WAS NOT A FOUL! https://t.co/CIorGckcEZ

Haaland taldi sig hafa jafnað metin

Mynd: EPA