Fotbolti.net
31.03.06 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Romario til Miami FC (Staðfest)

Ætlar sér að ná 1000 mörkum sem fyrst

Romario hefur engan áhuga á að hætta í boltanum þrátt fyrir að vera kominn á fimmtugsaldurinn

Romario hefur engan áhuga á að hætta í boltanum þrátt fyrir að vera kominn á fimmtugsaldurinn

Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum landsliðsmaður Brasilíu, Romario, gekk í dag til liðs við Miami FC sem er í annari deild í Bandaríkjunum frá Vasco da Gama á lánsamningi. Hann mun því snúa aftur til brasilíska liðsins í september á þesu ári en hann var markahæsti leikmaður brasilísku deildarinnar á síðasta tímabili með 22 mörk.
Liðið er í eigu brasilíska fyrirtækisins Traffic Sports og er það aðalástæðan fyrir því að þeir náðu að lokka hinn 40. ára gamla Romario til sín. Liðið hafði áður fengið til sín Zinho sem lék með Romario á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum árið 1994 þegar þeir urðu heimsmeistarar.

Miami er í The United Soccer League en sterkasta deildina þar í landi er Major Soccer League. Fyrsti leikur liðsins er svo 23. apríl gegn Montreal en lið frá Vancouver, Toronto, Atlanta, Portland og Minnesota spila einnig í þessari deild.

Romario er aðeins 36 mörkum frá því að skora þúsund mörk á ferlinum og ætlar hann sér að ná því takmarki áður en hann leggur skóna á hilluna, hvenar sem það verður. Aðeins einn maður hefur náð þeim árangri en það var ekki minni maður en sjálfur Pele.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.