31.03.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Ýmir fær fimm leikmenn (Staðfest)

Ólafur Júlíusson er farinn í Ými.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Guðjón Þór Ólafsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Ómar Ingi Guðmundsson.

Ýmir fékk á dögunum fimm leikmenn til liðs við sig fyrir komandi sumar. Aukinn kraftur hefur verið lagður í Ými í vetur frá því síðasta vetur og liður í því var að fá uppalda leikmenn HK til að koma aftur í Kópavoginn og spila undir merkjum Ýmis, sem er varalið HK.
Tveir leikmenn skiptu úr HK, einn úr ÍH og tveir úr Val. Einn leikmannana kemur á láni en hinir fá endanleg félagskipti og geta allri þessir leikmenn því leikið með Ými í Lengjubikarnum þar sem liðið á fyrsta leik á föstudag.
Ólafur V. Júlíusson og Guðjón Þór Ólafsson komu úr HK. Ólafur er reynslumikill miðjumaður og framherji sem kemur á lán til Ýmis og á eftir að styrkja Ými mikið. Ólafur sem verður þrítugur á árinu hefur skorað 58 mörk í 152 leikjum fyrir HK og er markahæsti leikmaðurinn í sögu HK.
Ólafur spilaði síðast í 3.deildinni þegar HK fór upp úr henni sumarið 2001 og skoraði hann það árið 22 mörk í 27 leikjum. Auk HK hefur Ólafur leikið með Val, Fylki, Aftureldingu og Þór.
Guðjón Þór er stór og sterkur varnarmaður sem að spilaði 17 leiki með KS/Leiftri síðasta sumar og fór með þeim upp úr 2.deildinni. Guðjón er 21.árs gamall og var í liðinu sem að vann fyrsta Íslandsmeistaratitil HK árið 2001.
Ómar Ingi Guðmundsson kemur úr ÍH þar sem að hann var í aðeins 3 vikur síðasta sumar eftir að hafa skipt úr Aftureldingu. Ómar Ingi spilaði ekkert síðasta sumar þar sem hann ristarbrotnaði um vorið.
Ómar er uppalinn HK-ingur og var í liðinu sem að komst í úrvalsdeildina í fyrsta skipti í sögu félagsins. Ómar Ingi hefur áður verið í Ými en hann fór þangað á lán í einn mánuð sumarið 2006.
Gunnsteinn Finnsson og Gunnar Héðinn Stefánsson eru báðir fæddir 1988 og skipta úr Val eftir að hafa verið þar í eitt ár, en hafa annars alltaf verið í HK. Gunnsteinn er hávaxinn varnarmaður sem að varð Íslandsmeistari með 4.flokkiHK 2001 og 2002 en það eru fyrstu íslandsmeistaratitlar HK.
Gunnar Héðinn er fljótur örvfættur bakvörður og kantmaður sem að byrjaði æfa með HK í 3.flokki. Þrátt fyrir stuttan knattspyrnuferil er Gunnar Héðinn sterkur leikmaður sem hefur leikið nokkra meistaraflokksleiki með HK.
Ýmir mun styrkja sig enn frekar fyrir sumarið og er von á fleiri félagsskiptum í vikunni.