Færist nær því að yfirgefa Man Utd - Barca ætlar að kaupa Rashford - Newcastle hefur áhuga á Ederson
   sun 31. mars 2024 21:00
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Rodrygo sá um Athletic - Real Madrid með átta stiga forystu á toppnum
Rodrygo skoraði bæði mörk Madrídinga
Rodrygo skoraði bæði mörk Madrídinga
Mynd: EPA
Real Madrid er með átta stiga forystu í efsta sæti La Liga á Spáni eftir að liðið vann 2-0 sigur á Athletic Bilbao á Santiago Bernabeu í kvöld.

Brasilíski vængmaðurinn Rodrygo skoraði bæði mörk Madrídinga í leiknum.

Fyrra markið var stórbrotið. Brahim Díaz kom boltanum frá hægri yfir á vinstri vænginn þar sem Rodrygo var mættur, hann hljóp í átt að teignum áður en hann skaut boltanum efst í hægra hornið.

Seinna markið gerði hann á 73. mínútu. Jude Bellingham lagði boltann út vinstra megin á Rodrygo, sem tók eina gabbhreyfingu áður en hann lagði boltann í nærhornið.

Real Madrid er með 75 stig á toppnum, átta stigum á undan Barcelona þegar átta umferðir eru eftir.

Úrslit og markaskorarar:

Celta 0 - 0 Rayo Vallecano

Alaves 0 - 1 Real Sociedad
0-1 Jon Pacheco Dozagarat ('59 )

Real Madrid 2 - 0 Athletic
1-0 Rodrygo ('8 )
2-0 Rodrygo ('73 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 11 10 0 1 26 10 +16 30
2 Barcelona 11 8 1 2 28 13 +15 25
3 Villarreal 11 7 2 2 22 10 +12 23
4 Atletico Madrid 11 6 4 1 21 10 +11 22
5 Betis 11 5 4 2 18 12 +6 19
6 Espanyol 11 5 3 3 15 13 +2 18
7 Getafe 11 5 2 4 12 13 -1 17
8 Alaves 11 4 3 4 11 10 +1 15
9 Elche 11 3 5 3 12 13 -1 14
10 Vallecano 11 4 2 5 12 14 -2 14
11 Athletic 11 4 2 5 11 13 -2 14
12 Celta 11 2 7 2 13 14 -1 13
13 Sevilla 11 4 1 6 17 19 -2 13
14 Real Sociedad 11 3 3 5 13 16 -3 12
15 Osasuna 11 3 2 6 9 12 -3 11
16 Levante 11 2 3 6 15 20 -5 9
17 Mallorca 11 2 3 6 11 18 -7 9
18 Valencia 11 2 3 6 10 20 -10 9
19 Oviedo 11 2 2 7 7 19 -12 8
20 Girona 11 1 4 6 10 24 -14 7
Athugasemdir
banner
banner