Það var mikið stress og mikið drama í umspilinu fyrir HM í kvöld. Fjögur laus sæti voru í boði og fjórir úrslitaleikir.
Núna er ljóst að tvö lið eru komin áfram á HM sem fer fram í sumar en leikir eru á leið í framlengingu.
Núna er ljóst að tvö lið eru komin áfram á HM sem fer fram í sumar en leikir eru á leið í framlengingu.
Í fyrsta lagi er Ítalía að fara í framlengingu gegn Bosníu. Ítalía komst yfir snemma en Alessandro Bastoni fékk svo rautt spjald fyrir ljóta tæklingu undir lok fyrri hálfleiks. Bosnía jafnaði metin gegn tíu Ítölum og þarf að framlengja. Einnig þarf að framlengja í Tékklandi þar sem Danmörk náði að jafna í síðari hálfleik.
Liðin tvö sem eru komin inn á mótið úr umspilinu eru Tyrkland og Svíþjóð. Það var heldur betur dramatík í Svíþjóð þar sem Viktor Gyökeres reyndist hetjan í lokin. Hann skoraði þá mark af miklu harðfylgi og ætlaði allt um koll að keyra.
Svíar voru hrikalega lélegir í undankeppninni en komust í umspilið í gegnum Þjóðadeildina og fara þannig inn á mótið. Graham Potter er fljótt orðin þjóðhetja í Svíþjóð en hann tók við liðinu í lok undankeppninnar.
Þá vann Tyrkland 1-0 sigur gegn Kosóvó þar sem Muhammed Kerem Akturkoglu var hetjan. Tyrkir mæta því inn á HM með sína ástríðufullu stuðningsmenn á meðan Kosóvó situr eftir með sárt ennið.
Bosnía 1 - 1 Ítalia
0-1 Moise Kean ('15 )
1-1 Haris Tabakovic ('79 )
Rautt spjald: Alessandro Bastoni, Ítalía ('41)
Tékkland 1 - 1 Danmörk
1-0 Pavel Sulc ('3 )
1-1 Joachim Andersen ('72 )
Kosóvó 0 - 1 Tyrkland
0-1 Muhammed Kerem Akturkoglu ('53 )
Svíþjóð 3 - 2 Pólland
1-0 Anthony Elanga ('19 )
1-1 Nicola Zalewski ('33 )
2-1 Gustaf Lagerbielke ('44 )
2-2 Karol Swiderski ('55 )
3-2 Viktor Gyokeres ('88 )

