31.05.06 - 06:57
Magnús Már Einarsson
Valdez til Dortmund (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund mun fá paragvæska sóknarmanninn Nelson Valdez frá Werder Bremen í júlí næstkomandi og er kaupverðið talið vera 4,7 milljónir punda.
Valdez sem fer með Paragvæ á HM þurfti oft að dvelja á bekknum hjá Bremen en hann skoraði alls 21 mark í 80 deildarleikjum fyrir liðið.
,,Við erum ánægðir með að hafa náð samningi við Bremen því Nelson er okkar fyrsti kostur. Hann er alltaf hættulegur fyrir framan markið og er maðurinn sem við þurftum til að styrkja liðið okkar," sagði Hans-Joachim Watzke markaðsstjóri Dortmund en Valdez mun gera fjögurra ára samning við liðið.