31.05.06 - 22:50
Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Gunnlaugssson gengur í raðir ÍA (Staðfest)

Bjarki Bergmann Gunnlaugsson.

Mynd: Sport.is

Bjarki Bergmann Gunnlaugsson.

Mynd: Sport.is
Bjarki Bergmann Gunnlaugsson er genginn í raðir uppeldisfélags síns, ÍA frá KR en gengið var frá þessu í dag. Bjarki fylgir í kjölfar bróður síns, Arnars, sem gekk í raðir félagsins í vetur og bræðranna Þórðar og Bjarna Guðjónssona.
,,Ég er búinn að skipta í ÍA, ég veit ekki hvort ég næ að spila eitthvað eða ekki," sagði Bjarki í samtali við Fótbolta.net í kvöld en hann hefur átt við langvinn meiðsli að stríða. ,,Ég veit ekki hversu lengi það dugir en ég ætla bara að kíla á þetta."
Skagamönnum hefur ekkert gengið það sem af er leiktíðarinnar og hafa tapað öllum leikjum sínum í fyrstu fjórum umferðum Landsbankadeildarinnar. Við spurðum Bjarka hvort ástæða þess að hann sneri til baka nú væri til að hjálpa sínum gömlu félögum í neyð?
,,Að stórum hluta, en líka bara persónulegt. Ég var ekki alveg sáttur við hvernig þetta endaði og vildi enda á mínum forsendum. Það var erfitt að enda svona, erfiðara en ég hélt."
Eins og áður sagði hefur Bjarki átt við langvinn meiðsli að stríða og hefur ekki getað einbeitt sér að fullu í fótboltanum undanfarin ár. En er hann nógu góður af meiðslunum til að snúa aftur núna?
,,Ég veit ekki hvort þetta er byggt á raunsætt mati hjá mér. Það hefur ekkert lagast síðan síðast í raun og veru. Ég verð bara að stýra álaginu sjálfur og fæ það hjá Óla, og ÍA. Ég tek bara eina og eina æfingu og einn og einn leik í einu."
Bjarki hafði æft með ÍA eins og við greindum frá fyrr í mánuðinum en var einnig með öðrum flokki Þróttar og fór með þeim í æfingaferð til Portúgals.
,,Ég hef verið að mæta einu sinni í viku og var í viku í Portúgal með öðrum flokki Þróttar. Eftir það setti ég meira trukk á þetta og spilaði í 60 mínútur í leik. Eftir það fannst mér ég geta gert eitthvað. Ég spila ekki alla leiki sem eftir eru en er hérna til að hjálpa til og spila eitthvað. Svo kemur í ljós hversu mikið það verður."
,,Úthaldið er ennþá í fínu lagi en svo er bara spurningin hvernig skrokkurinn heldur við. Í dag er ég frekar að hugsa um einn leik í viku eða svoleiðis svo mun ég sjá hvort það er grundvöllur fyrir meiru. En ég renn bara blint í sjóinn. Þetta var bara tækifæri til að skipta og það er búið að gera það og svo tökum við bara næsta skref."
Bjarki hefur verið hjá KR undanfarin ár og þeir röndóttu í Vesturbænum voru honum mjög liðlegir þegar hann vildi nú snúa heim á Skagann á ný, þar sem hann hóf ferilinn.
,,Ég vil koma á framfæri þakklæti til KR-inga fyri að hafa leyft mér að fara. Þeir skildu mig fullkomnlega," sagði Bjarki að lokum í samtali við Fótbolta.net í kvöld.