Fotbolti.net
31.05.25 - 13:15
Brynjar Ingi Erluson

Everton kaupir Alcaraz frá Flamengo (Staðfest)

Everton kaupir Alcaraz frá Flamengo (Staðfest)
Canon

Mynd: Everton

Everton hefur gengið frá kaupum á argentínska miðjumanninum Carlos Alcaraz frá Flamengo.
Alcaraz, sem er 22 ára gamall, eyddi síðari hluta tímabilsins á láni hjá Everton.

Hann kom að fimm mörkum í sextán deildarleikjum sínum með Everton og hefur félagið nú virkjað 12,6 milljóna punda kaupákvæði leikmannsins.

Everton greinir frá þessu á heimasíðu sinni en samningur hans mun gilda næstu tvö árin.

Alcaraz spilaði áður með Racing, Southampton og Juventus.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.