Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
   lau 31. maí 2025 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Marquinhos keyptur frá Arsenal (Staðfest)
Mynd: EPA
Brasilíski kantmaðurinn Marquinhos, sem skoraði eitt mark í sex leikjum með Arsenal, hefur verið keyptur til Cruzeiro í Brasilíu.

Marquinhos fór til Cruzeiro á eins árs lánssamning í janúar en brasilíska félagið hefur ákveðið að festa kaup á honum.

Marquinhos fær þriggja ára samning hjá Cruzeiro en hann er 22 ára gamall.

Marquinhos hefur aðeins tekist að skora eitt og leggja upp eitt með Cruzeiro en hann hefur sýnt frábæra takta sem sannfærðu félagið um að festa kaup á honum.

Talið er að Cruzeiro borgi um 5 milljónir punda til að kaupa Marquinhos frá Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner