Fotbolti.net
31.05.25 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson

Muslic tekinn við Schalke (Staðfest)

Muslic tekinn við Schalke (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enska félagið Plymouth Argyle hefur staðfest brottför austurríska þjálfarans Miron Muslic, en hann er tekinn við þýska B-deildarliðinu Schalke.
Muslic gerði þriggja ára samning við Plymouth í byrjun ársins og var ætlað að bjarga liðinu frá falli.

Hann náði ágætis árangri með Plymouth-liðið þó honum hafi ekki tekist að bjarga liðinu frá falli.

Plymouth náði undir hans stjórn að vinna úrvalsdeildarlið Brentford og Liverpool í ensku bikarkeppninni, en tapaði síðar fyrir Manchester City.

Þrátt fyrir ágætis lokasprett á tímabilinu mistókst honum að halda Plymouth áfram í deildinni.

Schalke hafði samband við Plymouth vegna Muslic í þessum mánuði og náði á endanum samkomulagi við enska félagið.

Plymouth var ósátt við ákvörðun Muslic sem hafði gefið félaginu loforð um að hann yrði áfram, en hann ákvað í staðinn að taka tilboði Schalke og hefur hann nú verið kynntur sem nýr þjálfari liðsins.

Muslic skrifaði undir tveggja ára samning við Schalke sem hafnaði í 14. sæti B-deildarinnar á nýafstaðinni leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.