Fotbolti.net
31.05.25 - 10:49
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham kaupir Danso (Staðfest) - Fimm farnir frá félaginu

Tottenham kaupir Danso (Staðfest) - Fimm farnir frá félaginu
Canon

Mynd: Tottenham

Tottenham hefur fest kaup á austurríska miðverðinum Kevin Danso frá franska félaginu Lens og á sama tíma staðfesti enska félagið að þeir Timo Werner, Fraser Forster, Sergio Reguilon, Pierre-Emile Höjbjerg og Alfie Whiteman væru farnir frá félaginu.
Danso er 26 ára gamall og kom til Tottenham frá Lens á láni í janúarglugganum.

Austurríska varnartröllið spilaði fimmtán leiki í heildina og þar af mikilvægar tólf mínútur í 1-0 sigrinum á Manchester United í úrslitaleik Evrópudeildarinnar er Tottenham vann sinn fyrsta titil í 17 ár.

Kaupákvæði var í samningi hans sem Tottenham virkjaði og hefur hann í kjölfarið skrifað undir fimm ára samning. Kaupverðið er 21 milljón punda.

Fimm farnir

Franska félagið Marseille keypti danska miðjumanninn PIerre-Emile Höjbjerg frá Tottenham.

Hann eyddi tímabilinu á láni hjá Marseille og virkjaði félagið sömuleiðis kaupákvæðið í samningi hans. Franska félagið greiddi 17 milljónir punda fyrir þjónustu hans.

Tottenham nýtti ekki ákvæðið í samningi þýska framherjans Timo Werner sem snýr aftur til Leipzig og þá fara þeir Alfie Whiteman, Sergio Reguilon og Fraser Forster allir frá félaginu þegar samningar þeirra renna út í lok júní.

Werner spilaði 27 leiki með Tottenham á leiktíðinni en skoraði aðeins eitt mark og gaf þrjár stoðsendingar. Hann mun líklega fara frá Leipzig í sumar.

Whiteman, sem er uppalinn hjá Tottenham, tókst aðeins að leika einn leik fyrir félagið á tíu árum sínum hjá félaginu. Eini leikur hans kom gegn Ludogorets í Evrópudeildinni árið 2020.

Spænski bakvörðurinn Reguilon var mikið meiddur á tímabilinu og lék aðeins 4 leiki með Tottenham. Hann fékk ekki nýjan samning og ekki heldur hinn 37 ára gamli Forster sem spilaði 13 leiki í markinu í fjarveru Guglielmo Vicario.

Timo Werner er farinn frá Tottenham

Timo Werner er farinn frá Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.