31.07.06 - 16:43
Magnús Már Einarsson
Helgi Pétur lánaður til HK (Staðfest)

Helgi Pétur í baráttunni í leik gegn Grindavík í fyrstu umferðinni í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

HK hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir lokasprettinn í fyrstu deildinni því varnar og miðjumaðurinn Helgi Pétur Magnússon hefur verið lánaður til félagsins frá ÍA út þetta tímabil.
Helgi Pétur sem er uppalinn hjá Skalllagrími var í byrjunarliði Skagamanna í fyrstu tveimur leikjum liðsins í Landsbankadeildinni í vor gegn Grindavík og KR en lenti síðan í meiðslum.
Eftir að hafa jafnað sig af meiðslunum hefur hann ekki náð að vinna sig inn í byrjunarliðið hjá Skagamönnum og hefur hann ekkert komið við sögu síðan í annarri umferð þó hann hafi verið í leikmannahópnum eins og gegn FH í gær.
Helgi Pétur er löglegur með HK á morgun og hann getur því leikið með liðinu gegn Haukum á útivelli í fyrstu deildinni á miðvikudaginn.
Félagaskipti dagsins