Fotbolti.net
31.07.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Albert Högni til ÍR (Staðfest)

Albert Högni til ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Varnarmaðurinn Albert Högni Arason úr Grindavík er genginn til liðs við ÍR úr annarri deild.
Albert Högni sem er 29 ára gamall hefur leikið fimm leiki með Grindvíkingum í sumar síðan að hann kom frá Haukum í vetur. Albert hefur einnig leikið með Aftureldingu, Leiftri/Dalvík og Þór hér á landi svo eitthvað sé nefnt.

ÍR-ingar fengu góðan liðsstyrk í gær þegar að Björn Viðar Ásbjörnsson kom til liðsins á láni frá Víkingi og nú hefur félagið fengið Albert Högna.

ÍR-ingar sem eru í þriðja sætinu í annarri deild mæta Selfyssingum sem eru í öðru sætinu í mikilvægum leik á morgun og þar ættu bæði Albert og Björn Viðar að geta leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.