31.07.07 - 11:31
Magnús Már Einarsson
Örn Kató Hauksson í Fjarðabyggð (Staðfest)

Örn Kató í leik með Val í Lengjubikarnum.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Fjarðabyggð úr fyrstu deild hefur fengið miðjumanninn og bakvörðinn Örn Kató Hauksson að láni frá Val út tímabilið.
Örn Kató sem lék tólf leiki með Val í fyrrasumar hefur ekkert leikið með liðinu í ár.
Hann fór til uppeldisfélagsins KA á láni í júní en varð fyrir því óláni að handleggsbrotna þannig að hann gat einungis leikið einn leik, í VISA-bikarnum gegn Þór.
Fjarðabyggð fer til Eyja og mætir ÍBV í fyrstu deildinni í kvöld. Örn Kató hefur þegar fengið leikheimild með Fjarðabyggð og getur því leikið með liðinu í kvöld.