Fotbolti.net
31.07.07 - 14:48
Sindri Þór Þorgeirsson

Michael Brown til Wigan (Staðfest)

Brown staldraði stutt við hjá Fulham

Brown staldraði stutt við hjá Fulham

Canon

Mynd: Getty Images

BBC tilkynnti rétt í þessu að Fulham hefðu selt enska miðjumanninn Michael Brown til enska úrvalsdeildarliðsins Wigan fyrir óuppgefna upphæð.
Brown var keyptur frá Tottenham Hotspur fyrir síðasta tímabil og spilaði 40 leiki fyrir Fulham, hann var gerður að fyrirliða í desember og var vel liðinn meðal stuðningsmanna Fulham.

Chris Hutchins þjálfari Wigan var mjög ánægður með kaupin á miðjumanninum sem hann er búinn að vera að eltast við í allt sumar.

,, Hann hefur mikla reynslu, er fjölhæfur og getur spilað allar stöður á miðjunni. Hann hefur verið vinsæll á meðal stuðningsmanna allsstaðar sem hann hefur verið og ég býst við að hann verði það líka hjá okkur," sagði Hutchins um sinn nýjasta leikmann.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.