31.07.07 - 22:37
Hafliði Breiðfjörð
Anders Kaagh til Þróttar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Þróttarar hafa fengið góðan liðsstyrk fyrir lokabaráttuna í 1. deildinni því danski framherjinn Anders Kaagh gekk til liðs við þá í dag frá AGF í Danmörku.
Kaagh sem er nýorðinn 21 árs gamall hefur verið hjá AGF síðan um aldamótin ef frá er talið eitt tímabil sem hann lék hjá Viborg 2004-2005. Hann hefur leikið 20 leiki fyrir AGF og skorað í þeim fjögur mörk.
Á vefsíðu AGF eru félagskiptin staðfest en þar kemur fram að Kaagh verði hjá Þrótti út tímabilið.
,,Ég óska Anders alls hins besta og ég vona að hann geti komið ferli sínum á skrið með því að skora nokkur mörk. Hann er leikmaður með gott auga fyrri booltanum og góðan líkamlegan styrk," sagði Brian Steen Nielsen íþróttastjóri AGF við vefsíðu félagsins en Kaagh lék síðast með AGF gegn Aarhus Fremad 22. október síðastliðinn.
Kaagh fær leikheimild með Þrótturum á morgun og getur því ekki verði með í leiknum gegn Leikni á Valbjarnarvelli í kvöld en ætti að vera með gegn KA 10. ágúst næstkomandi.