31.07.07 - 18:25
Mist Rúnarsdóttir
Ingibjörg Þ. Jóhannesdóttir til Hauka (Staðfest)

Ingibjörg er komin aftur í Hauka

Mynd: http://www.umobile.edu/

Ingibjörg er komin aftur í Hauka

Mynd: http://www.umobile.edu/

Haukar úr Hafnarfirði hafa fengið góðan liðstyrk í baráttuna í A-riðli 1.deildar kvenna en markvörðurinn Ingibjörg Þ. Jóhannesdóttir gekk til liðs við félagið í dag.
Ingibjörg er uppalin í Haukum og spilaði með þeim í 1.deildinni áður en liðið sameinaðist Þrótti og lék í efstu deild. Þar spilaði Ingibjörg fjóra leiki en skipti yfir í Þrótt ári síðar þegar samstarfi félaganna lauk og var aðalmarkvörður liðsins í 1.deild.
Undanfarin ár hefur Ingibjörg verið við háskólanám í Bandaríkjunum og spilað með skólaliði University of Mobile. Á sumrin hefur hún spilað á Íslandi. Hún gekk til liðs við KR sumarið 2005 og fór svo í Fylki ári síðar. Með félögunum tveimur lék hún samtals sex leiki í efstu deild.
Nú er Ingibjörg komin aftur heim á Ásvelli og mun án efa reynast ungu liði Hauka góður liðsstyrkur.
Haukaliðið er sem stendur í 4.sæti deildarinnar með 15 stig eftir 8 leiki. Leikur liðsins hefur farið vaxandi undanfarið og það er aldrei að vita nema þær setji góða pressu á efstu liðin og geri atlögu að sæti í úrslitakeppni 1.deildar.