Stefanía í síðasta leiknum: Ætlaði að setja þennan inn
Auglýsing

Stefanía Ragnarsdóttir var að leika sinn síðasta leik fyrir Fylki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

„Þetta var mjög góður leikur hjá okkur," sagði Stefanía Ragnarsdóttir, leikmaður Fylkis, eftir 3-2 sigur á ÍBV.
Stefanía skoraði þriðja mark Fylkis, en Cloe Lacasse minnkaði muninn og Fylkisstúlkur voru því aðeins stressaðar síðustu mínúturnar.
„Við vorum aðeins stressaðar í lokin, en það var gott að klára þetta."
„Við höfum verið að spila okkur betur saman. Þetta var ekki að detta með okkur fyrst. Það er frábært að tengja þrjá sigra og vonandi heldur það áfram."
Stefanía, sem er fædd árið 2000, skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fylki í leiknum í dag.
„Ég var búinn að lofa Kjartani (þjálfara Fylkis) í þessum leik. Ég er búin að vera brjáluð yfir því að hafa skorað neitt í sumar. Ég hugsaði bara að ég ætlaði að setja þennan inn," sagði Stefanía, en hún var að leika sinn síðasta leik fyrir Fylki. Hún er á leiðinni aftur í Val, en hún hefur verið í láni hjá Fylki í sumar.
Viðtalið er hér að ofan.