Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 31. júlí 2022 15:57
Brynjar Ingi Erluson
Sveinn Aron skoraði og lagði upp í átta marka leik - Hólmbert tryggði Lilleström sigurinn
Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði og lagði upp
Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði og lagði upp
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmbert Aron skoraði annað mark Lilleström
Hólmbert Aron skoraði annað mark Lilleström
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jónatan Ingi hefur átt gott tímabil með Sogndal
Jónatan Ingi hefur átt gott tímabil með Sogndal
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Sveinn Aron Guðjohnsen var í aðalhlutverki hjá Elfsborg er liðið gerði 4-4 jafntefli við Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í dag og þá gulltryggði Hólmbert Aron Friðjónsson Lilleström sigurinn með því að gera annað mark liðsins í 2-0 sigri á Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni.

Við byrjum á sænska boltanum. Sveinn Aron byrjaði hjá Elfsborg á meðan Valgeir Lunddal var í liði Häcken.

Sveinn Aron lagði upp annað mark Elfsborg á 8. mínútu og kom liðinu í 2-1 áður en hann gerði þriðja mark liðsins á 54. mínútu.

Landsliðsfélagarnir spiluðu báðir allan leikinn sem endaði með 4-4 jafntefli. Þetta var þá fjórða markið sem Sveinn Aron skorar í deildinni á þessu tímabili. Elfsborg er í 9. sæti með 21 stig en Häcken í 2. sæti með 32 stig.

Aron Bjarnason og Óli Valur Ómarsson voru báðir í byrjunarliði Sirius sem tapaði fyrir MJällby, 1-0. Óli Valur fór af velli á 75. mínútu, en Sirius er í 10. sæti með 21 stig.

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari Örgryte í sænsku B-deildinni, stýrði liði sínu til sigurs gegn Utsikten, 1-0. Þetta var annar sigur liðsins í deildinni undir stjórn Brynjars. Liðið er í 14. sæti með 13 stig.

Alex Þór Hauksson kom inná sem varamaður er Öster gerði 2-2 jafntefli við Västerås. Hann spilaði síðustu tíu mínútur leiksins en Öster er í 6. sæti með 26 stig. Serdjan Tufegdzic er þjálfari Öster.

Annað tap FCK

FCK tapaði öðrum leik sínum í dönsku úrvalsdeildinni í dag er liðið beið lægri hlut fyrir Viborg, 4-2, á útivelli. Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson byrjuðir báðir en Ísak fór af velli á 65. mínútu á meðan Hákon fór af velli undir lok leiks. FCK er búið að tapa tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum.

Mikael Neville Anderson var í byrjunarliði AGF sem gerði markalaust jafntefli við Randers. Hann fór af velli á 78. mínútu en AGF er með 4 stig eftir fyrstu þrjá leikina.

Aron Sigurðarson var sömuleiðis í byrjunarliði Horsens sem gerði markalaust jafntefli við Álaborg. Aron fór af velli á 77. mínútu en Horsens er taplaust á toppnum með 7 stig eftir fyrstu þrjá leikina.

Hólmbert og Jónathan sjóðheitir

Hólmbert Aron Friðjónsson gerði annað mark Lilleström í 2-0 sigri á Sarpsborg í norsku úrvalsdeildinni. Hólmbert kom inná á 34. mínútu og gerði mark sitt sex mínútum fyrir lok leiksins. Lilleström er með 36 stig í öðru sæti deildarinnar.

Ari Leifsson sat allan tímann á varamannabekk Strömgodset sem tapaði fyrir Molde, 3-0.

Jónatan Ingi Jónsson hefur átt frábært tímabil með Sogndal í norsku B-deildinni. Hann skoraði mark liðsins í 1-1 jafntefli liðsins við Asane en þetta var áttunda mark hans í deildinni í sumar og þá er hann með sex stoðsendingar. Valdimar Þór Ingimundarson spilaði einnig allan leikinn fyrir Sogndal sem er í 5. sæti með 29 stig.

Bjarni Mark Antonsson spilaði allan leikinn í 1-0 sigri Start á Fredrikstad. Start er í 9. sæti með 26 stig.
Athugasemdir
banner
banner