Man Utd í viðræðum um Donnarumma - Rodrigo Muniz er orðaður við Newcastle
   fim 31. júlí 2025 09:05
Elvar Geir Magnússon
Arnar Freyr frá HK í KR (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Arnar Freyr Ólafsson er kominn til KR þar sem hann mun keppa um stöðuna í marki Vesturbæjarliðsins við Halldór Snæ Georgsson.

„Knattspyrnudeild HK samþykkti í gærkvöldi kauptilboð í Arnar Frey Ólafsson markvörð HK," segir í tilkynningu frá HK.

„Arnar Freyr er einn leikjahæsti leikmaður í sögu HK og spilaði fyrir félagið 265 leiki. Hann gekk til liðs við HK árið 2016 og varð fljótt að lykilleikmanni liðsins. Hann hefur allann sinn HK feril verið fyrirmynd fyrir unga leikmenn félagsins og verið dyggur þjónn fyrir félagið, bæði innan og utan vallar."

„Knattspyrnudeild HK vill þakka Arnari Frey kærlega fyrir veru hans hjá félaginu og óskum við honum velfarnaðar á nýjum slóðum."

Arnar, sem er 32 ára, var aðalmarkvörður HK en undanfarna leiki hefur hann verið á bekknum á meðan Ólafur Örn Ásgeirsson hefur spilað. Hann gengur nú í raðir KR sem er í fallsæti í Bestu deildinni.



Athugasemdir
banner