31.07.26 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno Guimaraes kvaddi kónginn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bruno Guimaraes, fyrirliði Newcastle sem gæti verið á leið til Englandsmeistara Arsenal á næstu vikum, er búinn að kveðja kónginn í Newcastle eftir að Eddie Howe þjálfari sagði upp starfi sínu.

TENGT EFNI
Newcastle tilkynnir um brotthvarf Howe (Staðfest)
Howe sagði upp eftir fimm ár í Newcastle, en liðið náði slökum árangri á síðustu leiktíð og hefur selt nokkra lykilmenn í byrjun sumars.
„Konungur félagsins!! Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Ég elskaði tíma okkar saman og vil þakka þér fyrir að gera mig að betri leikmanni og manneskju. Engin orð geta lýst því hversu mikið ég naut þess að spila undir þinni stjórn. Ég óska þér alls hins besta í framtíðinni, stjóri," skrifaði Guimaraes í Instagram Story.
„Þú veittir mér heiðurinn að vera fyrirliði félagsins, fyrirliðinn þinn, og það er eitthvað sem ég mun ekki gleyma svo lengi sem ég lifi. Það hafa verið forréttindi að starfa með þér og ég er svo þakklátur fyrir stundir okkar saman. Þú ert án nokkurs vafa einn af allra bestu þjálfurum sem ég hef nokkurn tímann haft. Ég er þér ævinlega þakklátur og þú munt alltaf eiga vin í mér."