Fotbolti.net
31.07.26 - 11:18
Kári Snorrason

Guimaraes seinkar komu sinni í herbúðir Newcastle

Vill fara til Arsenal.

Vill fara til Arsenal.

Canon

Mynd: EPA

Bruno Guimaraes seinkað brottför sinni til La Manga á Spáni, þar sem liðið er í æfingaferð, svo hann gæti gengið frá félagaskiptum sínum til Arsenal.

70 milljóna punda tilboði Arsenal í leikmanninn var hafnað á dögunum. L'Equipe segir Arsenal hafa lagt fram 75 milljóna punda tilboð auk bónusgreiðslna.
Búist við því að Bruno fari til Arsenal
TENGT EFNI

Búist við því að Bruno fari til Arsenal

Franski miðillinn fullyrðir að Newcastle hafi samþykkt tilboðið og búist er við því að hann gangi í raðir Arsenal á næstu dögum.

Newcastle hefur misst marga lykilmenn í sumar; Sandro Tonali gekk í raðir Tottenham og Anthony Gordon fór til Barcelona. Þá er stjórinn Eddie Howe horfinn á braut og Matthias Jaissle, stjóri Al-Ahli í Sádi-Arabíu, tekur væntanlega við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.