31.08.05 - 09:35
Hafliði Breiðfjörð
Erik Edman til Rennes (Staðfest)




Franska félagið Rennes staðfestu í dag að Erik Edman varnarmaður Tottenham hafi gengið í þeirra raðir og gert við þá þriggja ára samning. Edman sem er 26 ára gamall sænskur landsliðsmaður gekk í raðir Tottenham í fyrrasumar frá Heereveen í Hollandi.
Hann lék 34 leiki með Tottenham og skoraði eitt mark sem var eitt af flottustu mörkum síðustu leiktíðar.
,,Ég vona að skiptin henti mér og geri mig að betri leikmanni í góðri deild," sagði Edman.
Í yfirlýsingu Rennes sagði: ,,Svíinn Erik Edman hefur skrifað undir þriggja ára samning."
,,Ég vona að skiptin henti mér og geri mig að betri leikmanni í góðri deild," sagði Edman.
Í yfirlýsingu Rennes sagði: ,,Svíinn Erik Edman hefur skrifað undir þriggja ára samning."
