Fotbolti.net
31.08.05 - 09:56
Magnús Már Einarsson

Jenas til Tottenham (Staðfest)

Jenas til Tottenham (Staðfest)
Canon
Tottenham hefur gengið frá kaupunum á miðjumanninum Jermaine Jenas frá Newcastle á 8 milljónir punda. Jenas fór af landsliðsæfingum hjá enska landsliðinu í gær til að geta farið í læknisskoðun og gengið frá skiptunum áður en félagaskiptaglugginn lokar í kvöld.
Hinn 22 ára gamli Jenas hefur viljað fara frá Newcastle en hann líkir því að spila þar við að "lifa í gullfiskabúri." Arsenal var einnig orðað við Jenas en grannar þeirra í Tottenham hafa nú klófest kappann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.