31.08.05 - 11:07
Magnús Már Einarsson
Portillo lánaður til Club Brugge (Staðfest)




Club Brugge hefur fengið framherjann Javier Portillo að láni frá Real Madrid út þessa leiktíð. Belgíska liðið mun greiða laun hans á leiktíðinni en það hefur ekki forkaupsrétt á Portillo eftir lánssamninginn.
Portillo sem var í láni hjá Fiorentina á síðustu leiktíð er kominn mjög aftarlega í goggunarröðina hjá Real Madrid eftir komu Robinho og Julio Baptista.
Hann fer nú til Belgíumeistarana í Club Brugge þar sem hann fær einnig tækifæri á að spila í Meistaradeildinni en bæði lið í Frakklandi og Ítalíu vildu fá hann.
Hann fer nú til Belgíumeistarana í Club Brugge þar sem hann fær einnig tækifæri á að spila í Meistaradeildinni en bæði lið í Frakklandi og Ítalíu vildu fá hann.
