31.08.05 - 11:14
Hafliði Breiðfjörð
Michael Owen til Newcastle (Staðfest)

Michael Owen framherji enska landsliðsins hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Newcastle eftir að hafa undirgengist læknisskoðun hjá félaginu.
Hann verður dýrasti leikmaður Newcastle frá upphafi því kaupverð er 17 milljónir punda eða tveimur milljónum meira en Newcastle greidd fyrir Alan Shearer á sínum tíma.
Owen sem er 25 ára gamall hafði sýnt því áhuga að ganga aftur til liðs við Liverpool sem seldu hann til Real Madrid í fyrrasumar en Liverpoool vildi ekki greiða svo mikið fyrir hann.
Orðrómur hafði verið uppi um að Owen gæti farið frá Newcastle eftir eitt ár en Newcastle staðfestu í dag að ekkert slíkt væri í samningnum.